Plakat: Saving Private Ryan (1998)Bönnuð innan 16 ára

Saving Private Ryan (1998)

1998169 mín.
Bönnuð innan 16 ára
DramaStríðsmyndGullmolar

Kvikmyndin vann 5 Óskarsverðlaun, en tilnefnd til 11. Besta kvikmyndataka, besta leikstjórn, bestu hljóðeffektar, besta klipping, besta hljóð. Saving Private Ryan fjallar um John H. Miller höfuðsmann og hersveit hans í síðari heimsstyrjöldinni. Hún hefst með innrásinni í Normandí þar sem meirihluti hermanna í hersveit Miller særist eða fellur í valinn. Þremur dögum síðar fær Miller þau fyrirmæli að fara inn á óvinasvæði með átta manna hersveit og finna þar óbreyttan hermann, Ryan að nafni. Ástæðan er sú að þrír bræður Ryans höfðu fallið í bardaga og þótti Marshall hershöfðingja að móðir þeirra hafi nú fært nægar fórnir. Ólíkt innrásinni í Normandí er markmið þeirra ekki að drepa óvininn heldur að bjarga lífi eins manns, ekki hershöfðingja eða ættgöfugs manns heldur óbreytts hermanns. En hvaða vit var í því að fórna lífi átta manna til að bjarga einum manni?

Sýningartímar

Engar sýningar í boði

Sýningartímar birtast hér þegar þeir liggja fyrir.

Skoða aðrar kvikmyndir →