Plakat: Pési Prakkari - BúningabíóLeyfð

Pési Prakkari - Búningabíó

202633 mín.
Leyfð
ÆvintýriTeiknimyndFjölskyldumynd

Pési Prakkari býður ykkur í alvöru hrekkjavökubíófjör þann 31. október í Sambíóunum í Kringlunni! Við hvetjum alla litla og stóra prakkara til að mæta í búningum! Það verður líka boðið upp á andlitsmálningu fyrir krakkana, skemmtilegar gjafir og Tulipop-ís fyrir litlu bíógestina. Það er komið haust á Tulipop eyjunni og vinirnir eru í óðaönn að undirbúa sig fyrir hrekkjavökuna. En þegar graskerin fara skyndilega að hverfa, eitt af öðru, hefst leitin að hinum dularfulla Pésa prakkara. Hver er Pési? Hvað varð um öll graskerin? Og tekst vinunum að leysa ráðgátuna áður en hrekkjavakan gengur í garð? Pési Prakkari er glænýtt, alíslenskt hrekkjavökuævintýri úr töfraheimi Tulipop. Fjörug og fyndin skemmtun fyrir alla fjölskylduna, stútfull af Tulipop töfrum og frumsömdum lögum eftir Daða Frey.

Leikstjórn
Selina Wagner
Leikarar
Vilhelm Neto, Egill Vilhjálmsson, Inga Sóllilja Arnarsdóttir, Magnús Darri Hallgrímsson, Þórdís Sólrún Þórðardóttir

Sýningartímar

Engar sýningar í boði

Sýningartímar birtast hér þegar þeir liggja fyrir.

Skoða aðrar kvikmyndir →