

La Fanciulla del West
Spennandi drama Puccinis úr villta vestrinu snýr aftur í nýrri uppfærslu hins þekkta breska leikstjóra Richards Jones, en þar með er í fyrsta sinn í meira en 30 ár frumsýnd ný uppfærsla Metropolitan-óperunnar á La Fanciulla del West. Sópransöngkonan Vita Mikneviciute bætir enn einu glæsilegu hlutverki við þegar fjölbreytt hlutverkaskrá sína hjá Metropolitan-óperunni og syngur Minnie í fyrsta sinn – hörkuduglega kráareigandann með hjarta úr gulli, sem finnur ástina þegar hún á síst von á henni. Tenórinn SeokJong Baek fer með hlutverk hins glæsilega ræningja sem kemur til afskekkts námubæjar í Kaliforníu til að vinna hjarta hennar, á móti barítóninum Christopher Maltman í hlutverki lögreglumannsins sem er staðráðinn í að láta réttvísina ná fram að ganga – og vinna Minnie sjálfur. Hljómsveitarstjórinn Keri-Lynn Wilson heldur um tónsprotann og stjórnar einu æsilegasta ævintýri óperuheimsins, sem verður sýnt beint frá sviði Metropolitan-óperunnar í kvikmyndahúsum um allan heim.
- Leikstjórn
- Keri-Lynn Wilson
- Leikarar
- Vita Mikneviciute, SeokJong Baek, Christopher Maltman