Plakat: Barry Lyndon (1975)Bönnuð innan 12 ára

Barry Lyndon (1975)

1975185 mín.2D
Bönnuð innan 12 ára
DramaÆvintýriStríðsmyndMánudagsbíó með Kubrick

Sagan gerist á 18. öldinni í litlu þorpi í Írlandi, en þar býr Redmond Barry, ungur sveitastrákur sem er ástfanginn af frænku sinni Nora Brady. Þegar Nora trúlofast breska liðsforingjanum John Quin, þá skorar Barry hann á hólm í byssueinvígi. Hann vinnur einvígið og flýr til Dublin en er rændur á leiðinni. Nú hefur Barry enga aðra úrkosti en að ganga í breska herinn til að berjast í sjö ára stríðinu. Hann gerist liðhlaupi og gengur í prússneska herinn þar sem hann bjargar lífi yfirmanns síns og verður skjólstæðingur hans og fer að njósna um írska fjárhættuspilarann Chevalier de Balibari. Hann hjálpar Chevalier og verður aðstoðarmaður hans þar til hann ákveður að giftast hinni auðugu lafði Lyndon. Þau flytja til Englands og Barry, sem þráir aðalstign, sólundar auðævum hennar og eignast hættulegan og hefnigjarnan óvin.

Sýningartímar

Engar sýningar í boði

Sýningartímar birtast hér þegar þeir liggja fyrir.

Skoða aðrar kvikmyndir →