

About Time (2013)
2013123 mín.2D
GamanDramaVísindaskáldskapurSkvísubíó
Kvöldið eftir annað misheppnað áramótapartí kemst Tim Lake að leyndarmáli: karlmennirnir í fjölskyldu hans geta ferðast um tímann! Tim getur þó ekki breytt gangi sögunnar, en hann getur breytt því sem hefur komið fyrir hann í eigin lífi og því sem mun koma fyrir hann í framtíðinni. Með þennan eiginleika að vopni ákveður hann að gera veröld sína aðeins skemmtilegri og finna sér kærustu, en Tim uppgötvar fljótlega að það er hægara sagt en gert!