Sex and the City 2 (2010)
Lífið leikur við Carrie og vinkonur hennar. Hún er í hamingjusömu sambandi við Mr. Big sem virðist loks hafa komist á stöðugan kjöl og vinkonurnar virðast allar vera að fá það sem þær vilja í lífinu. Hins vegar er aldrei langt í uppreisnina hjá þeim, þar sem þær draga stöðugt í efa þær hefðbundnu væntingar sem eru gerðar til þeirra á öllum sviðum, sem eiginkonur, mæður og fleira. Þó Carrie sé hamingjusöm með Mr. Big virðist hún hafa sífellt auknar áhyggjur af því að hamingjan muni ekki endast. Til að breyta aðeins til ákveða þær að skella sér í heilmikla ævintýrareisu. Þær yfirgefa öryggið í New York og fara til sólríkrar paradísar í Mið-Austurlöndum þar sem partýið stendur yfir allan sólarhringinn og eitthvað framandi og heillandi leynist við hvert götuhorn. En kannski hefur þessi ferð önnur og alvarlegri áhrif á líf þeirra en þær ætluðu sér.